blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

8.29.2005

Vinur minn

Vinur minn er dáinn. Tengsin á milli okkar eru langsótt en vináttann var sterk. Við kynntumst haustið sem við fluttum til Danmerkur. Við mæðgurnar vorum 2 í nýju landi með ný verkefni. Hann og kona hans tóku okkur eins og börnum sínum. Frá því í fyrsta skipti sem við hittumst fundum við hlýjuna og umhyggjuna sem einkenna þau hjóninn. Við urðum fjölskylda. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst honum og fyrir þær stundir sem við áttum saman. Sitja í garðinum og spjalla, ferðirnar okkar á söfn og í tívolí, matarboðin og öll kvöldin á mismunandi veitingastöðum, piknikk ferðin á ströndina, kayakferðin, þrautadagurinn og veislan um kvöldið, Silfur brúðkaups veislan þeirra, bæjarferðir, dagurinn í roskilde, konfektgerðin, spjallið við eldhúsborðið með kaffi bollan, flutningar, reyna að kenna mér dönsku, ferðin þeirra hingað til okkar um daginn, hún er ómetanleg fyrir okkur. Fyrir trúnað, leiðbeiningar, ábendingar, kvatningu, faðmlög, visku, ást, húmor, staðfestu, dugnað og þöggla samþykki.

8.23.2005

Enn Fjölgun

Birta fórnaði hömstrunum og hyggst einnig fórna sér fyrir nýja meðlim fjölskyldunar = Mjási (ég gat engu ráðið... vildi að hann væri nefndur Steingrímur en gekk ekkert)
Risa stórt krútt sem elskar að vera í kúr. Birta ætlar sem sagt að sleppa öllum ferðalögum næstu 15 árin svo kötturinn þurfi ekki að fara í pössun! Hún verður sem sagt 25 þegar hún ætlar sér að fara eitthvað:/ Hann kom til okkar í gær.. svoldið órólegur fyrst en var komin í góðan fíling þegar eg ætlaði að fara að sofa. Lagðist í hálsakotið á mér og malaði svo hátt að eg gat ekki með nokkru móti sofið í nótt. Planið er að hann sofi hjá Birtu ... nú er bara að venja hana af þvi að skríða uppí þvi þá kemur kötturinn líka!
Íbúðin er að skipta um ham þessa daganna... komin kraftur aftur í mann eftir lægð í heimilisviðgerðum. Þetta verður rosa flott :)
Í dag er fyrsti í rútinu ! Skólinn er byrjaður hjá Birtu og allir vöknuðu (mis hressir) kl að verða sjö í morgun. Nú verður maður að kveðja leti og snús og drífa sig af stað. Geisp!

8.15.2005

Snillinn ég !

Ég er snillingur! Tókst að eyða öllu sem eg hef sett inn í tölvuna mína síðustu viku og eyða símaskranni í símanum.. allt bara á 2 dögum!!!!! Engin smá bömmer... sennilega um 200 myndir frá þvi fyrir austan í síðustu viku og sennilega svona 13 GB af tónlist sem eg rippaði mér á laugardaginn! Allt farið! svekkjelsi og heimskukast :(

8.12.2005

tólfti áttundi

Fór uppá Eyjabakka og kárahnjúka í morgun. Verð nú að segja eins og er þá féll eg ekkert sérstaklega fyrir landslaginu en þar er ekki þar með sagt að ég skylji ekki andstæðinga og dýravini... bara svona mitt.. þar sem eg er ein að þeim sem finnst landslag aðlagandi og óendalega heillandi. Bjóst í alvöru við einhverju stærra dæmi en þetta er samt huge stórt. Það var svo klikkað mikil þoka á leiðinni þarna uppeftir.. sást ekki á milli stika... þannig þessi ferð tók aðeins lengri tíma en áætlað var.. samt fínt. Kom við í Hallormstaðaskóg á leiðinni til baka. Mikið er lyktin af trjánum æðislega góð.. ný búið að rigna og allt var eitthvað svo heillandi og ljómandi. Núna eru 2 tímar í flug!! hvað gerir kona á egilsstöðum ???? Inga!!!!!! Buin að skoða bæinn, fara í gallery, fara í blómagarðana, kíkja í blómabúðina og dúndurversluninna skóga ásamt fleiri, skoða allt í uppl miðstöðinni, kaupa mér síma og síðast en ekki síst!!!! keypti mér gallabuxur í KAUPFÉLAGINU.... ekki nóg með að eg hafi fengið þær þar.. þá voru þær á dúndur útsölu.. sem sagt eingin á Egilsstöðum vildi kaupa þær!!!!!!!! hhhmmmmm Er einvera mín orðin of löng? Er ég það háð félagsskap að ég missi allt vit þó maður hitti engan í viku sem maður þekkir!!! ?
Það er party og læti í kvöld og á morgun! veit ekki hversu aktíf eg verð þessa helgina... ætla samt alveg að vera með enda er þetta síðasta helgin hennar kötu minnar. Svo kemur Birta heim á sunnudaginn ... vá hvað eg hlakka til að knúsa hana :)

Ellefti áttundi
Ég held að konan sé að sjóða lamb á fæti með ull og det hele!!! Lyktinn er rosalega vond.. það kemur nú ekki mikil lykt inní kompuna mína en ég verð að halda í mér andanaum ef eg hætti mér fram á gang.
Í dag fór ég til Seyðisfjarðar. Rosalega lítill og krúttlegur bær. Norræna var ný komin svo bærinn var fullur af fólki og lífi.. kanski séð bæinn skarta sýnu fegursta. Leiðin þangað er rosalega brött og krókótt.. sennilega ekki hægt að fara fra bænum frá okt til mai!!!! ég held að ég myndi ekki lifa af einn vetur á þessum stað en væri alveg til í að vera ferðamaður þarna í nokkra daga. Held að eg geti nú sagt það sama um alla hina bæina sem eg er buin að fara til. Þeir eru allir voða vinalegir og mig virkilega langar að vera nokkra daga á hverjum stað. Landslagið hér er svo magnað, allt öðruvísu en ég hef séð á íslandi áður. Kanski líkast Vestfjörðum en fjöllinn eru allt öðruvísi í laginu, gróðurinn er öðruvísi og litirnir eru aðrir líka.. þannig ekkert líkt með þessum landshlutum? jú kanski hæðin á þeim. .. Þetta er orðið þannig að eg er farin að telja upp staði sem eg hef ekki komið á ... Finnst það frábært.. Búin að sjá hvernig þetta lítur út svona í heildina og get nú farið að einbeita mér að smáu stöðunum og afdölunum... veit um svo marga staði sem mig langar að sjá og vera á.

8.11.2005


nyja lookid! sjalfsmynd i minnsta gaeda flokki :I en �o sonnun tess ad eg let verda af tvi ad verda dokk aftur :) Posted by Picasa

Hann heitir James Blant og er snillingur. Kata gaf mér diskinn hans á laugardaginn og hann er buin að vera í standslausri spilun frá þvi á sunnudaginn... endilega fjárfestið í þessum eða rippið af netinu.. hann er frábær.
Vá hvað það verður einmannalegt þegar kata er farin... ég er farin að sakna þin áður en þu ert farin... sakn sakn... kanski flyt eg bara til þin

Ég hef reynt að halda mig við það að vera smá pæja þó að maður leggist svona í vosbúð og útiveru yfir lengri eða skemmri tima. Það er engin ástæða fyrir þvi að vera blautur í fæturnar og broða blautt fransbrauð þó maður sé í háfgerði útilegu. En guð minn góður hvað það reynist konu hálf erfitt. Voða erfitt að vera duglegur verkamaður og pæja á sama tíma!
En eg er alveg buin að komast af þvi að ef kona þarf að fá sínu fram einhverstaðar eða fá almennilega þjónustu þá þyðir ekkert annað en að laga sig til... þýðir ekkert að hanga í lopapeysu stemningunni og með hor út á kynn,,,,(ýkja.. eg veit.. en skemmtilegt ) !! eins ömurlegt og þetta hljómar þá er þetta satt. Í þessum túrum mínum þarf eg að fara inná flestar bæjarskrifstofur eða verkfræðistofur á pleisunum. Kona er dæmd á lookinu um leið og hún kemur inn og það sökkar! Eitt dæmi: var á húsavík.. var í briet bolnum mínum með leggöngunum og að vísu líka með gaddaól á úliðnum... en só vott!! það á ekki að skipta máli!!! Allavega.. ég fékk strax.. já er það vinan viðmótið!!!! Þoli ekki að kona þurfi að sanna sig með visku sinni til þess að fá virðingu! Ef ég væri með typpi þá hefði mér þetta viðhorf ekki einu sinni dottið í hug! Hefði bara verið lige glad..... hhhmmmm velti þvi fyrir mér hvort þetta segi ekki meira um mig en attitjút kalla !
Var að vinna í dag á Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað og trillaði mér svo til Egilsstaða þar sem eg tók ultra vinnutörn þannig allt er slippery. Ég hitti ekki marga í dag en einn “spes” náunga ræddi ég við h-e-i-l lengi uff... hann er harðasti virkjunar og stórframkvæmda andstæðingur sem eg hef hitt...Merkilegt fyrirbæri sá náungi.. Virtist alveg vera nokkuð hérna megin við geð-línuna og vita ansi margt en gall harður á sínum skoðunum sem eru einhliða og óhagganlegar. Virtist vera með nokkurs konar innbyggða síu á öðrum hugmyndum og skoðunum.. virtist hreinlega ekki heyra þær. Eddie hefði fílað það í tætlur að spjalla við þennan náunga. Þetta eru engvar smá framkvæmdir sem eru í gangi á Reyðarfirði. Þetta er svo stórt og umfangsmikið... svo skyldist mér á fyrirbærinu að þeir væru búnir að fá leyfi til að losa allt brennisteinsdíoxið út í umhverfið frá verksmiðjunni... en hef ekki hugmynd um sannleika þess!!!! skerí samt!

jæja

Ég er í heimagistingu á Stóra Sandfelli hjá krúttlegustu og minnstu konu á austfjörðum. Mér leið eins og eg væri RISA hávaxin áðan þegar eg var að spjalla við hana. Herbergið er eiginlega geymsla.. fer sem sagt í gegnum “búrið” og svo inni þetta herbergi. Herbergið er líka algerlega absúrt og krúttlegt. Við erum alveg að tala um persnesk teppi á gólfinu, ullarteppi á rúminu, rósóttar gardínur og kínversk ljósakróna... svo er allt svo lítið eitthvað og krúttlegt.. myndirnar á veggjunum eru landslagsmyndir og svona blóma myndir sem er búið að sauma með krosssaum!
ég er buin að stilla símanum mínum á hæðsta stað í herberginu til að ná signale.. ef eg skyldi eiga einhverja vini... ætla að hætta þessu bulli og hlusta á tónlist og fara í kapal... sorglegt en satt

8.09.2005

Níundi áttundi

Hitti Harlem fyrirmynd íslands í dag! Rollur í Öræfasveit! Þær stóðu a veginum og ætluðu bara ekki að hreyfa .. alveg sama hvað maður vældi á bílnum... þær horfðu bara a mann með só... what are you looking at mother fuker! svipnum og héldu áfram með tugguna sína! mér fannst þær frekar kúl. Það er skerí hvað manni finnst skemmtilegt og fyndið þegar maður er svona EINN með sjálfumsér í svona langan tíma! ufff... svo eru kanski 4 dagar eftir.. uff húmorinn sem eg verð buin að þróa þá!!!
Ég fór yfir í það óþekkta í dag.. sem sagt beigði til Djúpavogs!! *(hér á að fylgja með background tónlist.. voða spennandi) ... reyndar var tónlistinn diskurinn sem eg er buin að samsama mér við.. takk kata .. hann er æði!!!!!!! Ótrúlega falleg og skemmtileg leið... kanski af þetta er nýtt eða kanski ekki! allavega eg er komin á Reyðarfjörð og er búin að þræða allar búllur sem bjóða uppá kaffi á leiðinni :) Pínu sibbinn ennþá... er ekki alveg buin að ná mér eftir laugardagskvöldið.. sem var bæ þe vei alveg magnað!!! Mikið rosalega er lang síðan eg hef rokkað svona vel á 22 fram eftir morgni.

8.08.2005

Mánudagurinn áttundi áttundi

Ég olli ómældum skemmdum á umhverfinu í dag! litli landvörðurinn grætur mikið einhversstaðar inní mér yfir þessu öllu saman. Planið var bara að fara út í kannt og kíkja á gps-inn og ath hvort mælirinn væri ekki í nánd þvi ég sá hann ekki... afskaplega simple... smeigði mér hægt og rólega útí kannt.. en úps! jarðvegurinn var svo gegn sósa af vatni.. sá reyndar seinna að eg var á huge mýrarsvæði... alla vega... bíllinn tók þessari breytingu ekki betur en svo en hann skeitaði sér niður í mýrina... fékk smá auka hjarta bank.. en ætlaði svo aldeilis að bjarga mér.. og bílnum.. úr þessu... hhhmmmm allt sat fast... eftir svoldið spól og jarðvegsskemmdir komst eg áfram en ekki uppá veginn.... í stuttu máli þá eiðilagði eg svona 10 metra langan kafla með fram þjóðvegi eitt... spól fram og til baka! þýddi ekki lengur.. gafst upp og stoppaði næsta bíl. aaaa Gæl!! sem sagt þjóðverjar.. Hans settist undir stýrið og ég og Helga íttum eins og MF... og jeijj það tókst. Fylgi gallinn er bara að bíllinn safnaði mikið af steinum í þessu ævintýri... þvi mæti eg með rosa entrece hvar sem eg kem...og hitnaði kanski pínu meira en eðlilegt er....
Ég er komin í Skaftafell.. fékk gistingu þar sem sjálfboðaliðarnir hísast þegar þeir eru hér......á bara eftir að finna þjóðgarðsvörðinn og komast í hús... það er pínu ves að eg skuli ekki finna hann.. en það hlítur að reddast fyrir myrkur?? þvi sit eg hérna í bílnum og fæ mér að reykja með öllu þessu hreyna lofti.... þetta getur kallast sannkallaður jöfnuður????
Fékk gistingu í Betlehem :) góður félagsskapur og drukkið mikið af kókamjólk.

8.07.2005

Hrikalega erfiður sunnudagur. ég er að taka afleiðingunum af kveðjudeginum okkar Kötu. Mikið helvíti var gaman :)

8.03.2005


Vid Dyrhola Posted by Picasa


hann er miklu staerri en hann virdist :/ Posted by Picasa

Águst! ætli það sé ekki komin tími á að virkja síðuna aftur. Sumarfrí að mestu búið og allt stefnir í rútinu skóla og vinnu. Ekkert er betra en að hripla niður og koma frá sér þegar mikið liggur á :)